Síðustu leikirnir í riðlakeppni Copa America fara fram í nótt.
Brasilía og Kólumbía eru svo gott sem komin áfram en liðin berjast um toppsætið í riðlinum í nótt.
Þessi tvö stórlið eigast við en Kólumbía er á toppi riðilsins með sex stig og Brasilía í 2. sæti með fjögur. Kosta Ríka kemur þar á eftir með eitt stig og Paragvæ ekkert.
Brasilía er með mun betri markatölu en Kosta Ríka svo það þarf margt að gerast svo staðan breytist í riðlinum.
Copa America
01:00 Kosta Ríka - Paragvæ
01:00 Brasilía - Kólumbía
Athugasemdir