Romelu Lukaku framherji belgíska landsliðsins átti erfitt uppdráttar á EM en honum mistókst að skora.
Hann kom hins vegar boltanum nokkrum sinnum í netið en VAR tók alltaf fyrir hendurnar á honum og dæmdi þau af.
Domenico Tedesco landsliðsþjálfari Belgíu sýndi framherjanum traustið í viðtali eftir tap liðsins gegn Frakklandi í 16-liða úrslitum í dag.
„Við treystum fullkomnlega á Romelu, hann sýndi á ákveðnum augnablikum að hann er sá sem getur tekið liðið upp á annað stig og að hann geti skorað. Hann er alltaf klár og hættulegur," sagði Tedesco.
„Hann hefur átt erfitt uppdráttar á mótinu. Undir venjulegum kringumstæðum væri hann markahæstur í riðlakeppninni en hann fer héðan án þess að skora mark."
Athugasemdir