Eftir rúma viku hefst Evrópuævíntýri Stjörnumanna þetta árið því þá verður komið að einvígi gegn norður-írska liðinu Linfield. Linfield er öflugt lið og má búast við spennandi einvígi.
Stjörnumenn hafa farið þá leið að vera með sérstaka Evrópubúninga og er engin breyting þar á þetta árið. Nýi búningurinn var kynntur í gær með myndbandi sem má sjá hér neðst. Reykur, dramatík og allt til alls í góðu stemingsmynbandi.

Búningurinn er glæsilegur, dökkblár og eru merki og auglýsingar í silfri - blanda sem kemur vel út.
Fyrri leikur Stjörnunnar verður á heimavelli fimmtudaginn 11. júlí og útileikurinn fer svo fram viku síðar.
Athugasemdir