Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 01. nóvember 2022 23:25
Brynjar Ingi Erluson
Hundraðasti leikur Klopp í Meistaradeildinni - Guardiola með flesta sigra
Jürgen Klopp
Jürgen Klopp
Mynd: EPA
Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, fagnaði merkum áfanga í kvöld en hann var að stýra liði í 100. sinn í Meistaradeild Evrópu og hélt upp á það með 2-0 sigri á Napoli.

Klopp er aðeins sjöundi þjálfarinn í sögu keppninnar sem kemst í 100 leikja klúbbinn.

Sir Alex Ferguson leiðir listann með 194 leiki en á eftir honum koma Arsene Wenger, Carlo Ancelotti, Jose Mourinho, Pep Guardiola og Mircea Lucescu.

Á morgun mun Massimo Allegri bætast við listann er hann stýrir Juventus gegn Paris Saint-Germain.

Klopp vann 58 leiki í fyrstu hundrað leikjunum en aðeins Guardiola hefur betur. Guardiola vann 61 leik í fyrstu hundrað leikjum sínum í Meistaradeildinni. Magnaður árangur.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner