Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 01. nóvember 2022 21:01
Brynjar Ingi Erluson
Ramos um Messi: Samband okkar er frábært
Sergio Ramos og Lionel Messi
Sergio Ramos og Lionel Messi
Mynd: EPA
Sergio Ramos, varnarmaður Paris Saint-Germain, segir að samband hans og Lionel Messi sé eins gott það getur orðið.

Ramos og Messi komu báðir til PSG á síðasta ári en það vakti sérstaka athygli í ljósi þess að þeir voru erkifjendur á Spáni.

Messi var auðvitað aðalmaðurinn í Barcelona og Ramos mikilvægi hlekkurinn í vörn Real Madrid.

Þeir tókust á í El Clasico til fjölda ára og fylgdi því yfirleitt mikill hiti en þeim semur vel hjá PSG og má segja að þeir séu orðnir góðir vinir.

„Samband mitt við Lionel Messi? Það hefur fengið mikla athylgi en við erum báðir með sama markmið — og það er að vinna eitthvað með Paris Saint-Germain. Við viljum hjálpa liðinu eins vel og við getum með reynslu okkar. Samband okkar er frábær og það sést,“ sagði Ramos við franska fjölmiðla.
Athugasemdir
banner
banner