Newcastle ætlar að bjóða 80 milljónir fyrir Guéhi - Palmer ekki til sölu - Wirtz eftirsóttur - Man Utd vill ráða Amorim - Trent og Frimpong á...
banner
   lau 19. október 2024 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn í dag - Orri Steinn mætir spútnikliði síðasta tímabils
Mynd: Getty Images
Orri Steinn Óskarsson og hans menn í Real Sociedad heimsækja Girona í 10. umferð La Liga á Spáni í dag.

Athletic Bilbao og Espanyol mætast klukkan 12:00 og þá spilar Osasuna við Real Betis rúmum tveimur tímum síðar.

Klukkan 16:30 mætast Girona og Real Sociedad. Girona spilaði frábærlega á síðasta ári og kom sér í fyrsta sinn í sögunni í Meistaradeild Evrópu. Orri Steinn Óskarsson verður væntanlega í eldlínunni með Sociedad.

Celta og Spánarmeistarar Real Madrid loka síðan kvöldinu en Madrídingar reyna að saxa á forystu Barcelona í toppbaráttunni.

Leikir dagsins:
12:00 Athletic - Espanyol
14:15 Osasuna - Betis
16:30 Girona - Real Sociedad
19:00 Celta - Real Madrid
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 9 8 0 1 28 9 +19 24
2 Real Madrid 9 6 3 0 19 6 +13 21
3 Atletico Madrid 9 4 5 0 13 5 +8 17
4 Villarreal 9 5 2 2 17 17 0 17
5 Osasuna 9 4 3 2 13 14 -1 15
6 Athletic 9 4 2 3 13 10 +3 14
7 Mallorca 9 4 2 3 9 8 +1 14
8 Vallecano 9 3 4 2 11 9 +2 13
9 Celta 9 4 1 4 16 15 +1 13
10 Betis 9 3 3 3 8 8 0 12
11 Girona 9 3 3 3 11 12 -1 12
12 Sevilla 9 3 3 3 9 10 -1 12
13 Espanyol 9 3 1 5 9 13 -4 10
14 Alaves 10 3 1 6 13 18 -5 10
15 Real Sociedad 9 2 3 4 7 8 -1 9
16 Getafe 9 1 5 3 6 7 -1 8
17 Leganes 9 1 5 3 5 9 -4 8
18 Valladolid 10 2 2 6 8 21 -13 8
19 Valencia 9 1 3 5 5 13 -8 6
20 Las Palmas 9 0 3 6 9 17 -8 3
Athugasemdir
banner