Newcastle ætlar að bjóða 80 milljónir fyrir Guéhi - Palmer ekki til sölu - Wirtz eftirsóttur - Man Utd vill ráða Amorim - Trent og Frimpong á...
banner
   lau 19. október 2024 12:40
Ívan Guðjón Baldursson
Steve Bruce ekki á hliðarlínunni eftir fjölskylduharmleik
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, fyrrum fyrirliði Manchester United og núverandi þjálfari Blackpool í League One, verður ekki á hliðarlínunni gegn Barnsley um helgina eftir sorglegt andlát barnabarns hans.

Barnabarnið var aðeins fjögurra mánaða gamalt og kemur andlátið fjölskyldunni gríðarlega á óvart.

Alex Bruce, sonur Steve, verður heldur ekki með Salford City um helgina en hann er partur af þjálfarateymi félagsins, sem leikur í League Two.

Fyrrum fótboltamaðurinn Matt Smith, sem lék meðal annars fyrir Leeds, Fulham, QPR, Millwall og Salford áður en hann lagði skóna á hilluna í sumar, er tengdasonur Steve Bruce og faðir barnsins.

Hinn 63 ára gamli Bruce, sem hefur meðal annars þjálfað Aston Villa og Newcastle United á löngum ferli, tók við Blackpool í september eftir að hafa verið án starfs í tæplega tvö ár. Hann hefur farið vel af stað við stjórnvölinn þar.
Athugasemdir