Newcastle ætlar að bjóða 80 milljónir fyrir Guéhi - Palmer ekki til sölu - Wirtz eftirsóttur - Man Utd vill ráða Amorim - Trent og Frimpong á...
   lau 19. október 2024 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Eva Lind framlengir við Keflavík
Mynd: Keflavík
Eva Lind Daníelsdóttir hefur samið við Keflavík út tímabilið 2026 en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.

Eva er 25 ára gömul og kemur úr unglingastarfi Keflavíkur en hún á að baki 29 leiki og eitt mark í efstu deild með liðinu.

Í sumar spilaði hún 10 leiki er Keflavík féll niður í Lengjudeildina.

Hún, eins og tvíburasystir hennar Anita, ætlar að halda áfram tryggð við félagið en hún hefur gert samning sem gildir til loka árs 2026.

Keflavík greindi frá því fyrir helgi að Anita Lind yrði áfram í herbúðum Keflavíkur og nú er það komið á hreint að Eva verður áfram með henni þar.
Athugasemdir
banner
banner