Newcastle ætlar að bjóða 80 milljónir fyrir Guéhi - Palmer ekki til sölu - Wirtz eftirsóttur - Man Utd vill ráða Amorim - Trent og Frimpong á...
banner
   lau 19. október 2024 17:31
Brynjar Ingi Erluson
Klaufagangur Saliba heldur áfram - Sá rautt gegn Bournemouth
William Saliba gengur af velli
William Saliba gengur af velli
Mynd: Getty Images
Franski miðvörðurinn William Saliba er ekki beint að eiga frábæra viku en Arsenal er nú manni færri gegn Bournemouth eftir að hann fékk að líta rauða spjaldið fyrir klaufalegt brot.

Í landsliðsverkefninu fékk Saliba á sig klaufalega vítaspyrnu er hann keyrði inn í Lois Openda í Þjóðadeildinni í vikunni og tók hann klaufaskapinn með sér í leikin gegn Bournemouth.

Þegar hálftími var liðinn af leiknum tók hann niður Evanilson sem var að sleppa í gegn. Báðir féllu í grasið eftir viðskipti þeirra og eftir skoðun VAR fékk Saliba að líta rauða spjaldið.

Arsenal er því manni færri en staðan er markalaus í hálfleik. Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.

Sjáðu rauða spjaldið hér
Athugasemdir