Man City horfir til Gyökeres - Xavi vill taka Raphinha með sér - Man Utd gæti lánað Antony
   fim 24. október 2024 12:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrrum sóknarmaður Rangers í miklu veseni
Alfredo Morelos.
Alfredo Morelos.
Mynd: Getty Images
Alfredo Morelos, fyrrum sóknarmaður Rangers, hefur verið handtekinn grunaður um ölvunarakstur í heimalandi sínu, Kólumbíu.

Hinn 28 ára gamli Morelos er núna að spila með Atletico Nacional á láni frá Santos í Brasilíu.

Fjölmiðlar í Kólumbíu hafa sagt frá því að Morelos hafi keyrt ölvaður á mótorhjól nálægt flugvellinum í Medelín. Það var maður á mótorhjólinu en hann berst nú fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi.

Morelos lék með Rangers í Skotlandi frá 2017 til 2023. Á þeim tíma gerði hann 124 mörk 269 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner