Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
   mið 23. október 2024 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Evrópukeppni unglingaliða: Stórsigur hjá Agli
Egill Orri spilaði allan leikinn með Midtjylland
Egill Orri spilaði allan leikinn með Midtjylland
Mynd: Midtjylland
Egill Orri Arnarsson og félagar í Midtjylland unnu 4-0 stórsigur á Niedercorn í annarri umferð í Evrópukeppni unglingaliða í kvöld og er liðið því komið með annan fótinn í þriðju umferð.

Egill, sem er 16 ára gamall, kom til Midtjylland frá Þór í sumar og var að spila sinn fyrsta Evrópuleik með liðinu í kvöld.

Hann byrjaði í 4-0 stórsigrinum á Niedercorn frá Lúxemborg, en spiluð er tveggja leikja rimma.

Liðin eigast aftur við 5. nóvember og mun sigurvegarinn fara áfram í þriðju umferð.

Markvörðurinn Sigurður Jökull Ingvason gekk einnig í raðir Midtjylland frá Þór í sumar, en hann var ekki í leikmannahópi liðsins í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner