Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
   mið 23. október 2024 10:30
Ívan Guðjón Baldursson
Bjóða Kvaratskhelia margfalt betri samning
Kvaratskhelia er lykilmaður í liði Napoli og vill félagið ekki missa hann.
Kvaratskhelia er lykilmaður í liði Napoli og vill félagið ekki missa hann.
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið SSC Napoli er búið að bjóða georgíska kantmanninum Khvicha Kvaratskhelia nýjan samning þar sem launin hans eru margfölduð.

Kvaratskhelia var fenginn til Napoli fyrir tveimur árum síðan og hefur skinið skært í ítalska boltanum, en hann á þrjú ár eftir af núgildandi samningi sínum.

Hann fær 1,5 milljón evra í árslaun eftir skatt en nýi samningurinn er sagður hljóða upp á 6 milljónir evra eftir skatt.

Það eru ýmis stórveldi sem eru talin vera áhugasöm um að kaupa Kvaratskhelia, en Napoli vill ekki selja.

Kvaratskhelia er 23 ára gamall og hefur komið að 57 mörkum í 98 leikjum í öllum keppnum frá komu sinni til Napoli.
Athugasemdir
banner
banner