Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
   mið 23. október 2024 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
U15 endaði mótið með sterkum sigri
Byrjunarliðið í dag.
Byrjunarliðið í dag.
Mynd: KSÍ
U15 landslið karla vann góðan 0-2 sigur gegn Búlgaríu á UEFA Development móti sem fram fór í Búlgaríu.

Það var markalaust í hálfleik en rúmum tíu mínútum eftir að síðari hálfleikur hófst kom Bjarki Garðarsson íslenska liðinu yfir. Á 74. mínútu bætti Benjamín Björnsson við öðru marki Íslands og lokatölur því 0-2 fyrir Íslandi.

Íslenska liðið vann fyrsta leik sinn á mótinu 3-2 gegn Wales en tapaði 0-2 fyrir Spáni í sínum öðrum leik.

Byrjunarlið Íslands í dag:
1. Elmar Ágúst Halldórsson - Breiðablik
2. Emil Máni Breiðdal Kjartansson - HK
5. Markús Andri Daníelsson Martin - Hamar
6. Mikael Máni Þorfinnsson - Grindavík
9. Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson - Þór
10. Alexander Rafn Pálmason - KR
11. Bjarki Hrafn Garðarsson - Stjarnan
13. Aron Gunnar Matus - FH
15. Fjölnir Freysson - Þróttur R
17. Arnar Bjarki Gunnleifsson - Breiðablik
20. Róbert Hugi Sævarsson - FH
Athugasemdir
banner
banner
banner