Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
   mið 23. október 2024 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jhon Durán orðaður við Arsenal og Barcelona
Jhon Durán þykir gríðarlega efnilegur og er að gera frábæra hluti í enska boltanum þrátt fyrir ungan aldur.
Jhon Durán þykir gríðarlega efnilegur og er að gera frábæra hluti í enska boltanum þrátt fyrir ungan aldur.
Mynd: EPA
Sky Sports hefur það eftir öðrum fjölmiðlum að Arsenal hafi mikinn áhuga á kólbumíska framherjanum Jhon Durán, sem er aðeins 20 ára gamall.

Aston Villa vill þó ekki selja ungstirnið sitt og hefur skellt 75 milljón punda verðmiða á leikmanninn.

AS Colombia greinir frá því að Arsenal og Barcelona séu búin að setja sig í samband við Aston Villa til að reyna að kaupa Durán í janúarglugganum, en verðmiðinn er alltof hár.

Durán er kominn með 7 mörk í fyrstu 12 leikjunum á nýju tímabili, þrátt fyrir að koma yfirleitt inn af bekknum.

Chelsea og West Ham voru meðal félaga sem sýndu Durán áhuga í sumar en Aston Villa neitaði að selja hann.
Athugasemdir
banner
banner