Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
   mið 23. október 2024 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Trinity Rodman ekki í hópnum gegn Íslandi
Icelandair
Trinity Rodman.
Trinity Rodman.
Mynd: Getty Images
Íslenska kvennalandsliðið er mætt til Austin í Texas, þar sem liðið mætir Bandaríkjunum á fimmtudag. Leikurinn hefst 23:30 annað kvöld.

Stelpurnar okkar eru að fara að mæta Ólympíumeisturum Bandaríkjanna, sem eru sterkasta landslið í heimi, í tveimur æfingaleikjum.

Bandaríski hópurinn er afar sterkur en það vantar lykilkonu í hann. Trinity Rodman er fjarri góðu gamni vegna meiðsla.

Rodman leikur með Washington Spirit í heimalandinu en hún spilaði mikið lykilhlutverk á Ólympíuleikunum síðastliðið sumar. Hún er dóttir fyrrum körfuboltamannsins Dennis Rodman.

Rodman er tilnefnd til Ballon d'Or verðlauna, sem veitt eru besta leikmanni heims ár hvert rétt eins og Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Íslands.

Í bandaríska hópnum eru fjórir aðrir leikmenn sem eru tilnefndar til Ballon d'Or en það eru Alyssa Naeher, Sophia Smith, Mallory Swanson og Lindsey Horan.
Athugasemdir
banner
banner
banner