Mörg félög hafa áhuga á Rashford - Fara Antony og Zirkzee á láni? - Undirbúa brottför Alonso - Arsenal skoðar að stækka Emirates
   þri 22. október 2024 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu frábæra þrennu hjá Vinicius gegn Dortmund
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images
Vinicius Junior var hetja Real Madrid þegar liðið tók á móti Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu fyrr í kvöld.

Dortmund leiddi 0-2 í leikhlé en Real Madrid svaraði fyrir sig með fimm mörkum svo lokatölur urðu 5-2.

Vinicius átti stærsta þáttinn þar og skoraði þrjú mörk til að hjálpa Madrídingum með frábæra endurkomu.

Fyrsta markið sitt skoraði Vinicius úr þægilegu færi en seinni tvö mörkin gerði hann eftir glæsileg einstaklingsframtök.

Fyrst rak Vinicius boltann upp allan völlinn og skoraði með góðu skoti utan teigs eftir skyndisókn, áður en hann komst framhjá tveimur varnarmönnum Dortmund í uppbótartíma og innsiglaði sigurinn.

Fyrsta markið

Annað markið

Þriðja markið
Athugasemdir
banner
banner
banner