Mörg félög hafa áhuga á Rashford - Fara Antony og Zirkzee á láni? - Undirbúa brottför Alonso - Arsenal skoðar að stækka Emirates
   þri 22. október 2024 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chelsea setur ungan leikmann í frystikistuna
Josh Acheampong.
Josh Acheampong.
Mynd: Chelsea
Chelsea hefur tjáð bakverðinum efnilega Josh Acheampong að hann muni ekki spila aftur fyrir félagið fyrr en hann skrifar undir nýjan samning.

Núgildandi samningur Acheampong rennur út 2026 en hann hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning.

Viðræður hafa staðið yfir en þær hafa ekki náð langt.

Hann var þriðji bakvörður Chelsea þegar tímabilið hófst en hann hefur ekki fengið tækifæri með liðinu.

Núna hefur Chelsea ákveðið að setja hann í frystinn á meðan hann skrifar ekki undir samning. Það hefur verið áhugi á honum frá öðrum félögum en hann hefur mest verið orðaður við Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner