Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
banner
   mið 23. október 2024 13:03
Elvar Geir Magnússon
Son hvíldur á morgun
Son Heung-min.
Son Heung-min.
Mynd: EPA
Tottenham og AZ Alkmaar mætast í Evrópudeildinni á morgun. Ange Postecoglou stjóri Tottenham greindi frá því á fréttamannafundi í dag að Son Heung-min yrði hvíldur í leiknum.

Son kom til baka úr meiðslum og skoraði í 4-1 sigri gegn West Ham um síðustu helgi.

„Sonny var smá aumur eftir helgina. Hann var aldrei að fara að spila á morgun, við hvílum hann á morgun og sjáum hvernig hann verður," segir Postecoglou.

Brasilíski sóknarmaðurinn Richarlison sem er kominn til baka úr meiðslum verður með á morgun og þá var Wilson Odobert á æfingu í morgun en hann hefur verið frá síðan um miðjan september vegna meiðsla aftan í læri.
Athugasemdir
banner