Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
   mið 23. október 2024 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leeds sækir reynslumikinn miðjumann á frjálsri sölu
Joshua Guilavogui.
Joshua Guilavogui.
Mynd: Getty Images
Leeds hefur samið við miðjumanninn Joshua Guilavogui á frjálsri sölu.

Enska félagið hefur verið að glíma við meiðsli á miðsvæðinu og greip þess vegna til þess ráðs að sækja Guilavogui sem var án félags. Hann getur samið við Leeds utan félagaskiptaglugga þar sem hann var ekki með samning.

Daniel Farke, stjóri Leeds, talaði nýverið opinskátt um að hann væri að leita eftir manni inn á miðsvæðið.

„Hann myndi koma inn til að vera til staðar, koma inn með reynslu og kenna ungu leikmönnunum okkar," sagði Farke.

Guilavogui á flottan feril að baki en hann hefur spilað fyrir félög eins og Wolfsburg í Þýskalandi og Atletico Madrid á Spáni. Þessi 34 ára gamli miðjumaður lék síðast fyrir Mainz í Þýskalandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner