Man City horfir til Gyökeres - Xavi vill taka Raphinha með sér - Man Utd gæti lánað Antony
   fim 24. október 2024 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eriksen: Ef tilboðið kemur, þá mun ég taka því alvarlega
Christian Eriksen.
Christian Eriksen.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Danski miðjumaðurinn Christian Eriksen segir að hann muni taka tilboði frá Manchester United alvarlega, ef það kemur.

Eriksen verður samningslaus næsta sumar en það er spurning hvað verður um hann.

Hann er ekki í aðalhlutverki hjá United en hefur samt sem áður komið við sögu í níu leikjum til þessa á tímabilinu. Það eru enn töfrar í fótum Eriksen þó hann sé orðinn 32 ára.

„Þetta er ekki undir mér komið. Félagið ræður hvað það vill gera," segir Eriksen.

„Ég er að njóta mín og þannig hefur það verið síðustu árin. Ef það kemur tilboð þá mun ég taka því alvarlega."

Eriksen hefur verið orðaður við endurkomu til Ajax í Hollandi síðustu vikur.
Athugasemdir
banner
banner