Man City horfir til Gyökeres - Xavi vill taka Raphinha með sér - Man Utd gæti lánað Antony
   fim 24. október 2024 15:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Er bara með eitt vandamál
Matheus Nunes.
Matheus Nunes.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Englandsmeistara Manchester City, segir Matheus Nunes bara vera með eitt vandamál.

„Það er bara eitt vandamál hjá honum og það er að hann er með stjóra sem gefur honum ekki þær mínútur sem hann á skilið," segir Guardiola.

Nunes var keyptur til Man City frá Úlfunum sumarið 2023 fyrir 53 milljónir punda en hefur verið í algjöru aukahlutverki síðan þá. Hann fékk að spila gegn Sparta Prag í Meistaradeildinni í gær og átti þá stórleik.

„Hann var mjög góður. Þegar hann skoraði, þá sást hversu glaðir liðsfélagar hans voru. Hann er yndislegur náungi og er elskaður af liðsfélögum sínum," sagði Guardiola.

„Hann er með sérstaka hæfileika og getur leyst mörg hlutverk. Hann er okkur mikilvægur."
Athugasemdir
banner
banner