Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
   mið 23. október 2024 09:30
Elvar Geir Magnússon
Motta: Áttum þetta tap skilið
Þetta var fyrsti tapleikur Juventus undir stjórn Motta.
Þetta var fyrsti tapleikur Juventus undir stjórn Motta.
Mynd: EPA
Thiago Motta stjóri Juventus viðurkennir að Stuttgart hafi verðskuldað sigurinn í Meistaradeildinni í gær. Þetta var fyrsta tap Juve undir stjórn Motta.

Stuttgart skoraði sigurmarkið undir lok leiksins í viðureign liðanna í Tórínó í gær.

„Þeir voru betri frá fyrstu mínútu. Þegar þú stýrir ekki leiknum þá lendirðu í vandræðum," sagði Motta en Juventus hafði unnið tvo fyrstu leiki sína í keppninni áður en kom að þessum leik.

Liðið fékk rautt spjald í gær þegar Danilo var sendur í sturtu þegar dæmd var á hann vítaspyrna. Mattia Perin varði spyrnuna en það taldi þó lítið í lokin.

„Við þurfum að kyngja þessu tapi sem fyrst, koma okkur á fætur og búa okkur undir leik gegn Inter. Stuttgart eru erfiðir andstæðingar og áttu skilið að vinna."
Athugasemdir
banner
banner
banner