Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
banner
   mið 23. október 2024 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
McGinn um Emery: Aldrei kynnst neinum honum líkum
Unai Emery.
Unai Emery.
Mynd: EPA
John McGinn, fyrirliði Aston Villa, segir að Unai Emery sé nú þegar goðsögn hjá félaginu.

Villa hefur byrjað frábærlega á tímabilinu og liðið er á toppnum á nýju fyrirkomulagi í Meistaradeildinni. Villa er í fyrsta sinn í þeirri keppni síðan 1983 en Emery stýrði þeim aftur þangað.

Emery hefur ekki enn unnið titil með Aston Villa en McGinn telur að hann sé nú þegar búinn að skrá sig í sögubækurnar hjá félaginu.

„Sama hvað gerist frá þessum tímapunkti og þangað til hann fer - sem við vonum að gerist aldrei - þá er hann klárlega einn besti stjóri í sögu félagsins," sagði McGinn.

„Þú nærist af leiðtoganum. Hann er leiðtogi okkar og við nærumst á því."

„Það er gríðarlegur drifkraftur í honum. Ég hef aldrei kynnst neinum honum líkum," sagði fyrirliði Aston Villa en Emery hefur gert magnaða hluti fyrir félagið sem var ekki fyrir svo löngu að berjast í neðri hluta ensku úrvalsdeildarinnnar.
Athugasemdir
banner
banner