Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
banner
   mið 23. október 2024 23:50
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu stórglæsilegt mark Haaland
Erling Braut Haaland skoraði geggjað mark
Erling Braut Haaland skoraði geggjað mark
Mynd: Getty Images
Norðmaðurinn Erling Braut Haaland skoraði eitt flottasta mark tímabilsins í Meistaradeild Evrópu í kvöld er Manchester City kjöldró Spörtu Prag, 5-0, á Etihad.

Haaland skoraði stórbrotið mark á lofti en hann teygði út löppina og náði að setja hælinn í boltann sem steinlá síðan í hægra horninu er Manchester City vann Spörtu Prag, 5-0.

Framherjinn skoraði annað mark í leiknum, en þeir Phil Foden, John Stones og Mathus Nunes komust einnig á blað.

Hægt er að sjá öll mörkin í spilaranum hér fyrir neðan en afspilun hefst eftir 35 sekúndur er Haaland skoraði umtalaða hælspyrnumarkið.


Athugasemdir
banner