Mörg félög hafa áhuga á Rashford - Fara Antony og Zirkzee á láni? - Undirbúa brottför Alonso - Arsenal skoðar að stækka Emirates
   þri 22. október 2024 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eru ekki með nein plön um að reka stjórann
Russell Martin.
Russell Martin.
Mynd: Getty Images
Southampton er ekki með nein plön í náinni framtíð um að reka Russell Martin úr starfi.

Martin kom Southampton upp í ensku úrvalsdeildina fyrir þetta tímabil en liðið hefur farið mjög erfiðlega af stað á nýju tímabili.

Southampton hefur ekki unnið einn af fyrstu átta leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni en liðið tapaði gegn Leicester í síðustu umferð eftir að hafa komist 2-0 yfir.

Þrátt fyrir þetta slæma gengi, þá er Martin með stuðning frá stjórn félagsins.

Martin er með ákveðinn leikstíl en hann hefur verið gagnrýndur nokkuð fyrir að halda of fast í hann. Ef úrslitin batna ekki, þá mun pressan heldur betur þyngjast.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner