Man City horfir til Gyökeres - Xavi vill taka Raphinha með sér - Man Utd gæti lánað Antony
   fim 24. október 2024 10:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Geri ekki ráð fyrir neinu öðru en að við höldum honum"
Erik Tobias Sandberg.
Erik Tobias Sandberg.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, gerir ráð fyrir því að halda Norðmanninum Erik Tobias Sandberg í vörninni hjá Skagamönnum á næsta tímabili.

Erik Tobias kom til ÍA fyrir tímabilið sem er núna og hefur verið flottur í vörn liðsins.

Jón Þór var spurður að því eftir síðasta leik hvort vonir stæðu um það að Erik yrði áfram hjá félaginu á næstu leiktíð.

„Já, að sjálfsögðu," sagði þjálfari Skagamanna þá.

„Hann er með samning út næsta ár þannig að ég geri ekki ráð fyrir neinu öðru en að við höldum honum."

ÍA er sem stendur í fimmta sæti Bestu deildarinnar en liðið mun rétta missa af Evrópusæti.
Jón Þór brjálaður: Er verið að gera grín að okkur?
Athugasemdir