Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
   mið 23. október 2024 16:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fer vonarstjarnan Archie Gray á láni?
Archie Gray.
Archie Gray.
Mynd: Getty Images
Möguleiki er á því að miðjumaðurinn efnilegi, Archie Gray, verði lánaður frá Tottenham þegar janúarglugginn opnar.

Gray var keyptur til Spurs frá Leeds fyrir 40 milljónir punda síðastliðið sumar en hann hefur aðeins spilað 34 mínútur í ensku úrvalsdeildinni til þessa.

Mucho Deporte á Spáni segir núna frá því að Sevilla á Spáni hafi áhuga á Gray.

Yfirmaður fótboltamála hjá Sevilla er Victor Orta en hann vann áður hjá Leeds og veit því allt um hæfileika Gray.

Sevilla er sem stendur í 13. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner