Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
   mið 23. október 2024 21:20
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Markalaust hjá Arnóri - Þriðja tapið í röð hjá Guðlaugi Victori og Rooney
Arnór Sigurðsson kom inn af bekknum hjá Blackburn
Arnór Sigurðsson kom inn af bekknum hjá Blackburn
Mynd: Getty Images
Guðlaugur Victor hefur þurft að bíða heldur þolinmóður eftir tækifærinu
Guðlaugur Victor hefur þurft að bíða heldur þolinmóður eftir tækifærinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Síðustu fimm leikirnir í 11. umferð ensku B-deildarinnar fóru fram í kvöld en Arnór Sigurðsson og félagar í Blackburn Rovers gerðu markalust jafntefli við WBA á meðan Plymouth tapaði þriðja leiknum í röð.

Arnór var á bekknum hjá Blackburn en kom inn á þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Blackburn hefur verið að gera ágætis hluti á tímabilinu og var að mæta WBA, sem var með jafnmörg stig og Blackburn fyrir leikinn.

Markalaust jafntefli var niðurstaðan og er Blackburn í 6. sæti með 19 stig, eins og WBA, sem er í 4. sæti með betri markatölu.

Guðlaugur Victor Pálsson var ónotaður varamaður fjórða leikinn í röð er Plymouth tapaði fyrir Millwall, 1-0. Þetta var þriðja tap liðsins í röð, en Wayne Rooney er stjóri liðsins.

Plymouth er í 21. sæti deildarinnar með 11 stig.

Sunderland vann Luton Town, 2-1, og er nú með þriggja stiga forystu á toppnum.

Hull City 1 - 1 Burnley
1-0 Xavier Simons ('45 )
1-1 Zian Flemming ('77 )

Blackburn 0 - 0 West Brom

Luton 1 - 2 Sunderland
0-1 Chris Rigg ('55 )
1-1 Elijah Adebayo ('63 )
1-2 Romaine Mundle ('66 )

Middlesbrough 1 - 0 Sheffield Utd
1-0 Emmanuel Latte Lath ('80 )

Millwall 1 - 0 Plymouth
1-0 Romain Esse ('13 )
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Sunderland 11 8 1 2 21 9 +12 25
2 Burnley 11 6 4 1 17 5 +12 22
3 Leeds 11 6 4 1 19 8 +11 22
4 Sheffield Utd 11 6 3 2 12 6 +6 19
5 West Brom 11 5 4 2 13 7 +6 19
6 Blackburn 11 5 4 2 16 11 +5 19
7 Norwich 11 4 5 2 19 13 +6 17
8 Middlesbrough 11 5 2 4 11 9 +2 17
9 Watford 11 5 1 5 15 19 -4 16
10 Bristol City 11 3 6 2 14 16 -2 15
11 Oxford United 11 3 5 3 15 13 +2 14
12 Derby County 11 4 2 5 14 14 0 14
13 Millwall 11 3 4 4 14 12 +2 13
14 Swansea 11 3 4 4 8 7 +1 13
15 Hull City 11 3 4 4 13 15 -2 13
16 Preston NE 11 3 4 4 10 14 -4 13
17 Stoke City 11 3 3 5 13 15 -2 12
18 Sheff Wed 11 3 3 5 11 17 -6 12
19 Luton 11 3 2 6 12 17 -5 11
20 Cardiff City 11 3 2 6 11 18 -7 11
21 Plymouth 11 3 2 6 10 19 -9 11
22 Coventry 11 2 3 6 11 15 -4 9
23 QPR 11 1 5 5 11 19 -8 8
24 Portsmouth 11 1 5 5 11 23 -12 8
Athugasemdir
banner