Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
   mið 23. október 2024 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndir sem særðu Raphinha
Raphinha hefur aldrei leikið betur fyrir Barcelona en núna.
Raphinha hefur aldrei leikið betur fyrir Barcelona en núna.
Mynd: EPA
Brasilíski kantmaðurinn Raphinha hefur átt virkilega flott tímabil með Barcelona hingað til.

Hann segist þó hafa verið pirraður í sumar þegar hann sá stuðningsmenn félagsins með Nico Williams treyjur. Stuðningsmennirnir merktu treyjurnar með númerinu '11' en Raphinha leikur með það númer á bakinu.

Barcelona reyndi að kaupa Williams í sumar en hann vildi ekki yfirgefa Athletic Bilbao.

„Ég sá myndir af þessum treyjum á Instagram. Mér fannst þetta lélegt grín, bara vanvirðing," sagði Raphinha á fréttamannafundi.

„Fólk þarf að virða leikmennnina sem eru til staðar hjá félaginu. Við erum að berjast fyrir félagið. Það var ekki gaman fyrir mig að sjá þessar myndir. Það var sárt fyrir mig."

Raphinha hefur leikið með Barcelona frá 2022 en hann hefur aldrei leikið betur en núna.


Athugasemdir
banner
banner
banner