Mörg félög hafa áhuga á Rashford - Fara Antony og Zirkzee á láni? - Undirbúa brottför Alonso - Arsenal skoðar að stækka Emirates
banner
   þri 22. október 2024 20:45
Ívan Guðjón Baldursson
Cole Campbell á bekknum á Santiago Bernabéu
Mynd: Borussia Dortmund
Borussia Dortmund er þessa stundina að spila stórleik gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu, þar sem staðan er 3-2 á lokakafla leiksins.

Dortmund komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik en Real tókst að snúa stöðunni við og taka forystuna í síðari hálfleik.

Hér eru tvö stórlið að etja kappi en þau mættust síðast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrir sumarfrí, þar sem Real Madrid hafði betur.

Það vekur athygli að bandaríski Íslendingurinn William Cole Campbell, sem var lykilmaður í U17 landsliði Íslendinga og spilaði fyrir meistaraflokk FH og Breiðabliks, er á varamannabekknum hjá Dortmund.

Campbell þykir bráðefnilegur og skipti yfir í bandaríska landsliðið fyrr á árinu. Hann hefur skorað tvö mörk í tveimur leikjum fyrir U19 liðið hjá Bandaríkjunum og er að gera flotta hluti með unglingaliði Dortmund.

Hann hefur hrifið þjálfarateymið nægilega mikið til að verðskulda að vera í leikmannahópi meistaraflokks í stórleik kvöldsins á Santiago Bernabéu.
Athugasemdir
banner
banner