Man Utd hefur rætt við Xavi - Potter, Moyes og Southgate orðaðir við Palace - Terzic orðaður við West Ham
   mið 23. október 2024 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho hress: Þá verða þeir að borga mér stóran bónus
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: EPA
Jose Mourinho var í sjálfsögðu í stuði þegar hann ræddi við fréttamenn í dag. Á morgun taka lærisveinar hans í Fenerbahce á móti hans gamla félagi, Manchester United, í Evrópudeildinni.

Mourinho grínaðist með það við fréttamenn frá Bretlandi að United skuldi honum hugsanlega enn stóran bónus.

Það er ef Manchester City verður dæmt í máli sínu gegn ensku úrvalsdeildinni.

„Við unnum Evrópudeildina og enduðum í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni," sagði Mourinho um tíma sinn hjá United.

„Ég held að við eigum enn möguleika á því að vinna titilinn frá 2018. Kannski refsa þeir Man City og við vinnum deildina. Þá verða þeir að borga mér stóran bónus og gefa mér medalíuna."
Athugasemdir
banner
banner
banner