Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 27. september 2022 20:42
Brynjar Ingi Erluson
Mitrovic með fimmtíu mörk í 76 leikjum
Aleksandar Mitrovic er engum líkur
Aleksandar Mitrovic er engum líkur
Mynd: EPA
Serbneski framherjinn Aleksandar Mitrovic skoraði 50. mark sitt fyrir landsliðið í kvöld í leik gegn Norðmönnum í Þjóðadeildinni.

Mitrovic gerði annað mark Serbíu gegn Noregi og var það nokkuð sérstakt mark.

Þetta var hans 50. mark á landsliðsferlinum og tók hann aðeins 76 leiki að afreka það.

Til samanburðar tók það Cristiano Ronaldo 114 leiki til að skora 50 mörk fyrir Portúgal og þá þurfti Lionel Messi 107 leiki til þess að ná því.

Magnaður Mitrovic sem hefur verið sjóðandi heitur í ensku úrvalsdeildinni með Fulham á leiktíðinni og er kominn með 6 mörk í 7 leikjum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner