Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   þri 27. september 2022 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vill ekki sjá Mings nálægt landsliðinu - „Hann er hræðilegur"
Tyrone Mings.
Tyrone Mings.
Mynd: EPA
Danny Mills, fyrrum landsliðsmaður Englands, vill ekki sjá Tyrone Mings nálægt enska landsliðinu.

Hinn 29 ára gamli Mings hefur farið erfiðlega af stað með Aston Villa á þessari leiktíð og komst hann ekki í leikmannahóp Englands fyrir síðasta verkefni.

John Stones meiddist í leik gegn Þýskalandi í gær og það er hugsanlegt að Gareth Southgate muni horfa til Mings ef Stones verður lengi frá, en hann hefur oft valið Mings í landsliðið.

Það var rætt um það á Talksport hvort Mings gæti komið aftur inn í hópinn en Mills vill ekki sjá það gerast. Þegar hann var spurður af hverju þá sagði hann einfaldlega:

„Af því að hann er hræðilegur."

HM í Katar hefst í nóvember, en Englendingar þykja ekki líklegir til afreka í ljósi spilamennsku liðsins upp á síðkastið.
Athugasemdir
banner
banner
banner