Gomes gríðarlega eftirsóttur - Liverpool og Man Utd með í kappinu um Guéhi - Liverpool missir af Gordon og skoðar Adeyemi - Barca vill losna við De...
   lau 28. september 2024 15:15
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Newcastle og Man City: Grealish maður leiksins
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images
Sky Sports hefur gefið leikmönnum einkunnir eftir 1-1 jafntefli Newcastle United á heimavelli gegn Englandsmeisturum Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Jack Grealish var besti leikmaður vallarins en hann fær 7 í einkunn eftir að hafa lagt eina mark Man City upp.

Það voru margir aðrir leikmenn sem fengu sömu einkunn og Grealish í þessum jafna slag, en Ederson og Ilkay Gündogan fá lægstu einkunnir vallarins.

Ederson braut af sér innan vítateigs til að gefa Newcastle jöfnunarmarkið, þó að endursýning hafi sýnt að snertingin var afar lítilvæg en þó til staðar svo ekki var snúið dómnum við með hjálp VAR tækninnar. Gündogan klúðraði þá nokkrum góðum sóknum með slæmri ákvarðanatöku og fá þessir tveir leikmenn 5 í einkunn fyrir sinn þátt.

Newcastle: Pope (7), Trippier (7), Schar (7), Burn (6), Hall (6), Tonali (7), Guimaraes (6), Joelinton (6), Murphy (6), Barnes (6), Gordon (7).
Varamenn: Willock (6), Longstaff (6), Livramento (6)

Man City: Ederson (5), Walker (6), Dias (6), Akanji (7), Gvardiol (7), Lewis (7), Kovacic (7), Bernardo Silva (6), Gundogan (5), Grealish (7), Haaland (6).
Varamenn: Foden (6), Savinho (6), Doku (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner