Sane, Bruno og Zubimendi orðaðir við Arsenal - Útsendarar Liverpool fylgjast með Hato - Tilboði Man Utd í De Jong var hafnað
   fim 13. mars 2025 09:26
Elvar Geir Magnússon
Carragher fór veikur heim úr sjónvarpssal
Jamie Carragher.
Jamie Carragher.
Mynd: EPA
„Mér er farið að líða betur, var bara að athuga hvort liðið gæti höndlað fjarveru mína!" skrifaði Jamie Carragher á Instagram í gærkvöldi.

Carragher var einn af sérfræðingum CBS Sports fyrir Meistaradeildina í gær og tók þátt í upphitun fyrir leikina ásamt Micah Richards og Thierry Henry.

Athygli vakti að Carragher var svo ekki með í uppgjörinu en hann var einfaldlega slappur og fór veikur heim.

Carragher horfði á leik Liverpool og PSG á þriðjudaginn frá Kop stúkunni með vinum sínum en gerði svo leikinn upp hjá CBS Sports. Hans menn í Liverpool töpuðu í vítakeppni en Carragher sagði eftir leik að betra liðið í einvíginu hefði farið áfram.
Athugasemdir
banner
banner
banner