Mikill áhugi á Kimmich - Chelsea mun ekki kaupa markmann
   lau 01. mars 2025 11:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stjóri Fiorentina gríðarlega þakklátur Alberti - „Æfði ekkert"
Mynd: EPA
Albert Guðmundsson, leikmaður Fiorentina, var óvænt kominn út á völl í gær þegar liðið vann nauman sigur á Lecce. Talið var að hann yrði lengi frá vegna meiðsla.

Raffaele Palladino, stjóri Fiorentina, var gríðarlega þakklátur Alberti að hafa gefið grænt ljós á það að spila í gær en Albert kom inn á þegar tvær mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.

„Albert æfði ekkert með liðinu, ég þarf að þakka honum fyrir því þar til í gær hafði hann aðeins æft einn. Ég spurði hvort honum fannst hann vera tilbúinn að koma á bekkinn til að hjálpa og ég þakka honum frá dýpstu hjartarótum að hafa flýtt fyrir endurkomunni sinni. Við fáum hann alveg til baka á fimmtudaginn," sagði Palladino.

Fiorentina er í 6. sæti með 45 stig eftir sigurinn.

Albert verður væntanlega með Íslandi í leikjunum gegn Kosóvó í umspili Þjóðadeildarinnar í mars. Þeir verða 20. og 23. mars.
Athugasemdir
banner
banner
banner