Höttur/Huginn er búinn að semja við besta leikmann sinn frá síðustu leiktíð út tímabilið.
Spænski miðjumaðurinn Rafa Llop Caballe verður áfram á Austurlandi eftir frábært fyrsta tímabil í fyrra.
Rafa var lykilmaður í liði Hattar/Hugins sem fékk 30 stig úr 22 leikjum í 2. deildinni í fyrra.
Hann var valinn besti leikmaður tímabilsins hjá Hetti/Hugin og verður spennandi að fylgjast með honum næsta sumar.
Athugasemdir