Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins og Bayern, hefur verið valin íþróttamaður ársins 2024.
Hún var valin í kjöri Samtaka Íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins en hún fékk fullt hús stiga.
Árið 2024 var stórkostlegt hjá Glódísi en hún var fyrirliði Bayern og íslenska landsliðsins. Bayern varð þýskur meistari á síðustu leiktíð og íslenska landsliðið tryggði sér sæti á EM í Sviss á næsta ári.
Þá var hún í 22. sæti í kjöri bestu fótboltakonu heims, efst allra miðvarða.
Albert Guðmundsson, landsliðsmaður og leikmaður Fiorentina var í fjórða sæti, Orri Steinn Óskarsson, landsliðsmaður og leikmaður Real Sociedad í 8. sæti og Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona og leikmaður Wolfsburg, í 9. sæti.
Þá fengu Emilía Kiær Ásgeirsdóttir og Jóhann Berg Guðmundsson einnig atkvæði.
Íþróttamaður ársins 2024
1. Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna 480
2. Sóley Margrét Jónsdóttir, kraftlyftingar 217
3. Eygló Fanndal Sturludóttir, ólympískar lyftingar 159
4. Albert Guðmundsson, knattspyrna 156
5. Anton Sveinn McKee, sund 131
6. Ómar Ingi Magnússon, handknattleikur 94
7. Snæfríður Sól Jórunnardóttir, sund 69
8. Orri Steinn Óskarsson, knattspyrna 67
9. Sveindís Jane Jónsdóttir, knattspyrna 57
10. Ásta Kristinsdóttir, fimleikar 53
11. Thelma Aðalsteinsdóttir, fimleikar 48
12. Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleikur 42
13. Elvar Már Friðriksson, körfuknattleikur 37
14. Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur 36
15. Erna Sóley Gunnarsdóttir, frjálsíþróttir 30
16. Daníel Ingi Egilsson, frjálsíþróttir 29
17. Benedikt Gunnar Óskarsson, handknattleikur 16
18. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, knattspyrna 9
19.-20. Aron Pálmarsson, handknattleikur 7
Elín Klara Þorkelsdóttir, handknattleikur 7
21. Jóhann Berg Guðmundsson, knattspyrna 4
22. Sara Rún Hinriksdóttir, körfuknattleikur 2
23.-24. Elín Jóna Þorsteinsdóttir, handknattleikur 1
Kristinn Pálsson, körfuknattleikur 1
Þá var íslenska kvennalandsliðið í 3. sæti í kosningu um lið ársins. Karlalið Víkings sem hefur gert stórkostlega hluti undanfarið og er komið í útsláttakeppnina í Sambandsdeildinni er í 5. sæti. Karlalið Íslandsmeistara Breiðabliks er í 8.-9. sæti
Lið ársins
1. Valur handbolti karla 67
2. Ísland hópfimleikar kvenna 53
3. Ísland fótbolti kvenna 41
4. Valur handbolti kvenna 30
5. Víkingur fótbolti karla 14
6. Ísland körfubolti karla 6
7. FH handbolti karla 3
8.-9. Breiðablik fótbolti karla 1
Ísland handbolti kvenna 1
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, er í 3. sæti í kjörinu um þjálfara ársins. Þá fengu Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks og Freyr Alexandersson, fyrrum þjálfari Kortrijk, einnig atkvæði.
Þjálfari ársins
1. Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennaliðs Noregs í handbolta 116
2. Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta 48
3. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings í fótbolta 17
4. Alfreð Gíslason, þjálfari karlaliðs Þýskalands í handbolta 15
5. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals í handbolta 9
6. Halldór Árnason, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta 6
7. Freyr Alexandersson, þjálfari karlaliðs Kortrijk í fótbolta 5
Athugasemdir