Marc Guehi, varnarmaður enska landsliðsins, verður ekki með liðinu gegn Sviss í 8-liða úrslitum Evrópumótsins eftir að hafa fengið gula spjaldið gegn Slóvakíu í gær.
Guehi hefur byrjað alla leiki Englands á mótinu og verið afar öflugur í sínum aðgerðum.
Varnarmaðurinn fékk sitt fyrsta gula spjald á mótinu í lokaleik riðlakeppninnar gegn Slóveníu og nældi sér síðan í annað spjald í gær.
Slök sending Kieran Trippier varð til þess að Guehi þurfti að fleygja sér í tækingu og uppskar hann gula spjaldið fyrir.
Gareth Southgate, þjálfari landsliðsins, þarf því að velja Ezri Konsa, Joe Gomez eða Lewis Dunk í næsta leik, en talið er líklegast að Konsa komi inn.
Athugasemdir