Tómas Þór og Elvar Geir fara yfir allt það helsta í íslenska fótboltanum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 alla laugardaga milli 12 og 14.
Í þættinum á morgun verður farið yfir helstu fréttir vikunnar, öflugir leikmenn komu heim í Bestu deildina og Víkingur er að halda til Helsinki og mæta Panathinaikos.
Í þættinum á morgun verður farið yfir helstu fréttir vikunnar, öflugir leikmenn komu heim í Bestu deildina og Víkingur er að halda til Helsinki og mæta Panathinaikos.
Þá mætir sérfræðingurinn Baldvin Már Borgarsson og afhjúpar ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina í sumar.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Athugasemdir