Úrvalsdeildarfélög vilja lykilmenn frá Leipzig - Juve gæti reynt að kaupa Tonali - Tottenham hafnar tilboðum - Griezmann fær nýjan samning -...
   mið 09. apríl 2025 20:28
Ívan Guðjón Baldursson
Rice fyrstur til að skora úr tveimur aukaspyrnum
Mynd: EPA
Declan Rice skrifaði sig í sögubækurnar í gær þegar hann skoraði tvö mögnuð aukaspyrnumörk fyrir Arsenal í 3-0 sigri gegn Real Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Hann er fyrsti leikmaðurinn til að skora tvennu beint úr aukaspyrnu í sama leik í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.

Þetta er magnað afrek í sjálfu sér, en sérstaklega í ljósi þess að Rice hefur aldrei áður skorað beint úr aukaspyrnu á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta.

Seinni leikurinn fer fram í Madríd í næstu viku og ríkir gríðarleg eftirvænting fyrir stórslaginn.


Athugasemdir
banner