Ruben Amorim til Man City? - Alphonso Davies á óskalista Man Utd - Verðmiðinn á Antony - Barcelona á eftir tveimur leikmönnum Chelsea
   mið 16. október 2024 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Athletic: Real Madrid með það í forgangi að ná í Trent
Trent Alexander-Arnold
Trent Alexander-Arnold
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Real Madrid er með það í forgangi að sækja Trent Alexander-Arnold frá Liverpool næsta sumar en þetta kemur fram í Athletic.

Alexander-Arnold er að renna út á samningi hjá Liverpool og hefur félagið ekki enn boðið honum framlengingu.

Talið er að enski landsliðsmaðurinn sé að skoða sín mál en Liverpool mun þurfa að berjast við Real Madrid.

Maria Cortegana hjá Athletic segir það vera í algerum forgangi hjá Real Madrid að sækja Alexander-Arnold næsta sumar.

Samkvæmt fréttinni hefur Cortegana rætt við heimildarmenn sem þekkja vel til hjá Real Madrid sem segja að félagið vilji styrkja hægri bakvarðarstöðuna og þar sé Alexander-Arnold efstur á blaði, en það er einnig að skoða Jeremie Frimpong hjá Bayer Leverkusen, Pedro Porro hjá Tottenham og hinn unga og efnilega Juanlu sem er á mála hjá Sevilla.

Alexander-Arnold, sem er 26 ára gamall, er enn að ræða við Liverpool, en hann sagði á dögunum í viðtali við ITV að hann vildi vinna fleiri titla á ferli sínum.

„Ég er kominn á hátind ferilsins og ég vil ekki vera leikmaður sem tókst bara að vinna titla á yngri árum,“ sagði Alexander-Arnold við ITV í landsleikjatörninni.
Athugasemdir
banner
banner