Ruben Amorim til Man City? - Alphonso Davies á óskalista Man Utd - Verðmiðinn á Antony - Barcelona á eftir tveimur leikmönnum Chelsea
banner
   mið 16. október 2024 18:00
Brynjar Ingi Erluson
Spence framlengir við Tottenham
Mynd: EPA
Enski bakvörðurinn Djed Spence gerði í dag nýjan fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur.

Spence er 24 ára gamall hægri bakvörður sem var keyptur til Tottenham frá Middlesbrough fyrir tveimur árum.

Hann var sendur til Genoa á lán á síðustu leiktíð þar sem hann gerði vel og tókst honum að vinna sér inn sæti í hópnum hjá Tottenham fyrir þessa leiktíð.

Varnarmaðurinn, sem hefur þó aðeins spilað 61 mínútu í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu, hefur nú framlengt samning sinn við félagið til 2028.

Spence hefur verið í hópnum hjá Tottenham í öllum sjö leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner