Efstir á lista ef Guardiola hættir - Alexander-Arnold á leið til Real Madrid - Barcelona hafnaði risatilboði í Yamal - Ten Hag vill De Jong í janúar
   fös 18. október 2024 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arteta: Sjáum til hvort hann geti spilað
Bukayo Saka.
Bukayo Saka.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er lengra í Ödegaard.
Það er lengra í Ödegaard.
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, sjtóri Arsenal, tjáði sig á fréttamannafundi um nokkra leikmenn sem hafa verið að glíma við meiðsli að undanförnu. Hann var spurður út í þá Bukayo Saka, Gabriel Martinelli og Kai Havertz.

Framundan er útileikur gegn Bournemouth seinni partinn á morgun.

„Meiðsli Saka eru ekki alvarleg, hann er að koma til baka. Hann hefur getað gert nokkra hluti á æfingu síðustu tvo daga. Hann var ekki klár í að spila seinni leikinn með Englandi en við erum vonbóð. Við erum með æfingu seinni partinn, hann tók þátt í hluta æfingarinnar í gær, sjáum til hvort hann verði klár í tæka tíð fyrir leikinn á morgun," sagði spænski stjórinn um enska kantmanninn.

Ben White, Jurrien Timber og Oleksandr Zinchenko eru einnig að nálgast endurkomu, en lengra er í Martin Ödegaard.

Havertz var ekki með þýska landsliðinu í síðustu landsleikjum. Hann hefur glímt við meiðsli en er í meðhöndlun. Arteta segir að ef hann æfi með liðinu í dag þá gæti hann spilað.

Martinelli lenti á Englandi í gær eftir landsleiki með Brasilíu. Hann kom ekkert við sögu í seinni leiknum. „Við þurfum að sjá til."

„Vonandi fáum við jákvæðar fréttir í dag um að einhverjir verða klárir fyrir morgundaginn,"
sagði Arteta.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 7 6 0 1 13 2 +11 18
2 Man City 7 5 2 0 17 8 +9 17
3 Arsenal 7 5 2 0 15 6 +9 17
4 Chelsea 7 4 2 1 16 8 +8 14
5 Aston Villa 7 4 2 1 12 9 +3 14
6 Brighton 7 3 3 1 13 10 +3 12
7 Newcastle 7 3 3 1 8 7 +1 12
8 Fulham 7 3 2 2 10 8 +2 11
9 Tottenham 7 3 1 3 14 8 +6 10
10 Nott. Forest 7 2 4 1 7 6 +1 10
11 Brentford 7 3 1 3 13 13 0 10
12 West Ham 7 2 2 3 10 11 -1 8
13 Bournemouth 7 2 2 3 8 10 -2 8
14 Man Utd 7 2 2 3 5 8 -3 8
15 Leicester 7 1 3 3 9 12 -3 6
16 Everton 7 1 2 4 7 15 -8 5
17 Ipswich Town 7 0 4 3 6 14 -8 4
18 Crystal Palace 7 0 3 4 5 10 -5 3
19 Southampton 7 0 1 6 4 15 -11 1
20 Wolves 7 0 1 6 9 21 -12 1
Athugasemdir
banner
banner