Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fös 18. október 2024 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ásgeir Páll áfram í Keflavík
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Páll Magnússon hefur skrifað undir nýjan samning við Keflavík en hann gildir út árið 2027.


Þessi 24 ára gamli bakvörður gekk til liðs við Keflavík árið 2021 frá Leikni F.

Hlutverkið hans hefur verið ört stækkandi í liðinu en hann spilaði 20 leiki í Lengjudeildinni í sumar þar sem Keflavík var grátlega nálægt því að komast upp í Bestu deildina eftir tap gegn Aftureldingu í úrslitum umspilsins.

Hann hefur leikið rúmlega 70 leiki fyrir félagið.


Athugasemdir
banner
banner
banner