Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fim 17. október 2024 22:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Messi nýtur lífsins og hugsar ekki um HM
Mynd: Getty Images

Argentíski sóknarmaðurinn Lionel Messi, er ekki með hugann við HM 2026 þessa dagana en hann ætlar bara að njóta þess að spila fótbolta.


Argentína er á toppnum í undankeppni HM með 22 stig eftir tíu leiki. Liðið valtaði yfir Bólivíu 6-0 í gær þar sem Messi skoraði þrennu og lagði upp tvö mörk.

„Ég vil ekki hugsa of langt fram í tímann. Ég reyni að njóta lífsins á hverjum degi. Ég vona að ég geti haldið áfram að spila á þessu getustigi og liðið vel," sagði Messi.

„Þegar ég fæ að gera það sem ég elska er ég ánægður. Ég met það meira en að komast á HM 2026. Ég hef ekki sett mér það markmið að komast á HM frekar að lifa lífinu einn dag í einu."


Athugasemdir
banner
banner