Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fim 17. október 2024 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Refsing Atletico Madrid milduð verulega
Mynd: EPA

Atletico Madrid fékk refsingu vegna hegðunar stuðningsmanna liðsins í grannaslag gegn Real Madrid í lok september.


Stuðningsmennirnir köstuðu kveikjurum og rafrettum í átt að Thibaut Courtois markverði Real Madrid og þurfti því að stöðva leikinn til að koma ró á mannskapinn áður en hægt væri að halda áfram með leikinn.

Atletico fékk 45 þúsund evru sekt og stúkunni á heimavelli liðsins átti að loka að hluta til í næstu þremur leikjum.

Atletico áfrýjaði dómnum og bannið var stytt í einn leik og félagið þarf aðeins að borga 3 þúsund evru sekt.


Athugasemdir
banner
banner