Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
banner
   fim 17. október 2024 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Smith Rowe: Vildi finna ánægjuna aftur
Mynd: Getty Images

Emile Smith Rowe gekk til liðs við Fulham í sumar frá Arsenal en þessi 24 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá Arsenal.


Hann hafði hins vegar ekki fengið mörg tækifæri hjá Mikel Arteta og tók erfiða ákvörðun að fara frá félaginu.

„Síðustu tvö tímabilin spilaði ég ekki eins mikið og ég vildi og ég var alltaf með að á bakvið eyrað að ég vildi finna ánægjuna aftur. Ég vildi spila. Stundum verður maður að hugsa hvað er best fyrir mann sjálfan," sagði Smith Rowe.

„Ég vil alltaf setja félagið í efsta sæti en á sama tíma verð ég að taka ákvörðun svo ég verði ánægður. Þetta var líklega erfiðasta ákvöðrin sem ég hef tekið. En ég talaði við fjölskylduna og við ákváðum að þetta væri það besta fyrir mig."


Athugasemdir
banner