Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fös 18. október 2024 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lewandowski fær að öllum líkindum nýjan samning
Mynd: EPA

Hinn 36 ára gamli Robert Lewandowski er gríðarlega mikilvægur fyrir Barcelona en hann á um eitt og hálft ár eftir af samningi sínum.


Joan Laporta, forseti spænska félagsins, hefur greint frá því að hann muni fá nýjan samning ef hann nær að spila helming leikja liðsins á þessari leiktíð.

Lewandowski hefur farið stórkostlega af stað á þessu tímabili en hann hefur skorað 12 mörk í 11 leikjum í öllum keppnum.

Barcelona er á toppi spænsku deildarinnar en liðið fær Sevilla í heimsókn á sunnudaginn í næstu umferð deildarinnar.


Athugasemdir