Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
banner
   fim 17. október 2024 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wilshere að landa nýju starfi
Jack Wilshere.
Jack Wilshere.
Mynd: Getty Images
Jack Wilshere er núna nálægt því að taka næstu skrefin á sínum þjálfaraferli.

Wilshere byrjaði að þjálfa fyrir nokkrum árum og hefur verið að þjálfa U18 lið Arsenal upp á síðkastið.

Núna segir Sky Sports frá því að Norwich sé nálægt því að ná samkomulagi við Arsenal um að ráða Wilshere til starfa.

Wilshere muni þá koma inn í þjálfarateymið hjá aðalliði Norwich sem er í næst efstu deild í Englandi.

Wilshere, sem er 32 ára, er sagður spenntur fyrir starfinu hjá Norwich.

Hann var á sínum tíma einn efnilegasti fótboltamaður í heimi en meiðsli trufluðu hann mikið.
Athugasemdir
banner
banner